Sykurpúðarnir grilled not fried! ;)

Endurvakning 2010??

29.03.2010 22:13:36 / Iris

Uss.... hvað ?

Hvað segiði um að hafa eitthvað hressandi á prjónunum á næstu mánuðum ?
Þar sem ég sá nú að nokkrar ykkar eru að skoða þessa síðu!

Sumóferð eða grilldag/kvöld ?

Gera eitthvað kósý :D

Írís át


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2010 16:23:32 / Magga

2010

.... 2010 og við erum officially dauðar?
mun drengja kynslóðin okkar taka við?

Magga

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 12:04:25 / Iris

talnarögggl !=D

Mér langar að benda á nokkra skemmtilega þætti sem gerast á næstunni :lol:

Það eru 3 dagar þangað til að hún Helga flytur í nýja íbúð (17.Júlí)
Það eru 5 dagar í að hún Helga verður 21 árs (19.Júlí)
Það eru 10 dagar í að hún Kolla okkar viti kynið á bumbukrílinu sínu (24.Júlí)
Það eru 10 dagar í að ég fer í mæðraskoðun (24.Júlí)
Það eru 13 dagar í að ég fari á foreldranámskeið að læra að vera mamma =Þ (27-28.Júlí)
Það eru 21 dagur í að ég fari í 3D sónar (4.Ágúst)
Það eru 24 dagar í að ég verði 21 árs (7.Ágúst)
Það eru 24 dagar í að ég fari í útileigu (7-9. Ágúst)
Það eru 45 dagar í skólasetningu og skólann (24.Ágúst)
Það eru 52 dagar í að hún Berglind eigi 21.árs afmæli (31.Ágúst)

Þá er bara sumarið búið :lol: Svo á hann Hjörtur afmæli 19.September og svo kemur litli kútur ekki seinna en 16.Oktober. Aðeins 94 dagar í hann - allt að gerast ;)

Svo á hún Magga okkar afmæli og svo kemur litla krílið hennar Kollu 9.Des og svo eru jólin :lol::haha: Þetta er allt svo fljótt að gerast!

Ég og Hjörtur erum búin að finna okkur glæsilega íbúð sem planið er að bjóða tilboð í. Við gerum það þá í næstu viku þegar við erum búin að fá samþyggi frá fólkinu í blokkinni að Golíat megi búa þar líka. :haha: Vonandi gengur allt upp og við flytjum þá út í lok Ágúst! Úff ég vona innilega að allt gangi upp er orðin þreytt á að skoða svona mikið af íbúðum, allt of erfitt og þreytandi 8|

Annars vildi ég bara koma með bloggfærslu þar sem þessi síða er dauð! Er búin að vera það allt þetta árið!

Hvenær ætlum við í sumó saman ?

Kv.Íris

» 15 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 10:42:19 / Iris

...

Sæll.... Það er mánuður síðan var bloggað seinast!
Á maður ekki að lýsa þessa síðu dauða bara :$

En hvað segiði með eitthvern hitting bráðlega?
Tjaldhelgi ?
Sumóhelgi ?
Ég veit ég er til!

Hmm.... Á ég að bæta við í slúðurdálkinn !?

Kv.Íris

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2009 11:01:08 / Iris

Jahá...

Eitthvað hefur hittingum sykurpúðanna snar minnkað á þessu ári, og við sem ætluðum að vera virkari, það átti að hafa verið nýársheiti sykurpúðanna :lol:

Eitthvað verðum við að gera í þessu og legg ég til að við hittumst eitthvað í Júní.
Ég segi skellum okkur í sumarbústað í Júní eða jafnvel útileigu ? :d

Ég veit að hún Margrét er að fara úr landi á miðvikudag og stinga okkur hinar af.
Daman er að fara til Mallorca í útskriftarferð og verður í 2 vikur svo við verðum að sýna henni að við getum haft það gott án hennar og verðum við að hittast allavena 1x í hennar fjarveru :haha:

Hvað segiði ?
Eitthverjar hugmyndir ?

Annars er ég spennt fyrir helginni, 3 daga helgi sem býður upp á margt kósý !:haha:
Hver veit nema maður skelli sér upp í bústað eða geri eitthvað hresst núna um helgina.
Annars eru aðeins 4 DAGAR takk kærlega fyrir í að ég og Hjörtur förum í 20vikna sónarinn. Þá ætlum við að fá að vita kynið ef litla kríli vill sýna okkur ;)

En ólord hvað mig langar í frostpinna, klaka og hvað mig langar að fara í sund !!!
En ohh nei, ég er að vinna!
Ekki stuð að vera alltaf að vinna, væri alveg til í gott frí -
Fer í frí 1-10.Júlí  og svo fer ég í gott frí 1.September :haha:
Get ekki beðið !!!

En hvað er að frétta stúlkur ?
Finnst ykkur ekki að við ættum að bæta okkur í hittingum ? 

Jæja ég er farin að vinna!

Sælar að sinni 
Íris

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 12:13:26 / Hildur

HÆ!

Eruði dauðar???
Hvar eruði?

Hittingur soon??
Ég býð fram heimilið mitt :)
Hvað viljiði gera??

Kv. Hildur Ósk




» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 18:43:48 / Hildur

Sumar :)

Gleðilegt sumar mínir :)
Við verðum að vera duglegar að taka hittinga :)
Getum haft matarboð :)
Leigt okkur & horft á saman :)
Getum spilað, t.d. eða  :)
Verðum síðan að fara að taka eina ferð á þetta :)

Hvað segiði, eruði game ?

Kv. Hildur Ósk
 


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 13:30:01 / Iris

Skvabbiddí skvabb skibbidí skvóóó !

Hæ sætu telpur !

Hvað segiði í þessum fallega apríl mánuði og á þessum fallega degi ?

Mikið er langt síðan við höfum haft hitting við hópurinn !

Ég legg til að við hittumst n.k. Sunnudag þann 19.Apríl í Klapparbergi 27 kl: 20.00
Hver er leikur í það ?

Við getum haft það kósý, spjallað, fengið okkur eitthvað gott, starið á veggi, hisst og prjónað, getum æft okkur í að vera almennilegur saumaklúbbur ;)

Hvað segiði ?

Látið mig vita

Kveðja Íris

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 12:37:10 / Hildur

What up?! ;)

Stelpur, hvernig væri að fara að taka smá hitting á þetta bráðum ??!!
Þetta gengur ekki!
Hver á þennan mánuð í að halda hitting?
Er búin að gleyma þessu, man bara að ég á ágústmánuð :)

Þetta þarf nú ekki að vera mikið sko, bíó, kaffihús eða smá djamm bara :)
Svo held ég að það fari líka að koma að matarboði, það er OF langt síðan við vorum með sollis!!

Við verðum að plana eikkað!
Eikkerjar hugmyndir??

KOMMENTA!


Kv. Hildur Ósk

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 23:10:36 / Magga

hómís 4 læf!

hæ píur!

Í gær fór ég í heimsókn til Móní Póní en hún var að horfa á svo hryllilega leiðinlega mynd að ég fór bara að sofa. Þegar ég vaknaði ákvað ég "hingað og ekki lengra"!!! Það er kominn tími á hresst djamm!!! Ég man ekki einu sinni eftir seinasta partýstandinu okkar! :frown:

Þetta er sorglegt og nú þurfum við að taka okkur á!
Hver vill djamma næstu helgi???? 8)

ÚÚÚÚ SVO GETUM VIÐ FARIÐ AÐ AÐ SYNDA Í SELJAVALLA/LAUG (SELJALANDSLAUG) DAGINN EFTIR OG BOÐIÐ TIMBURMÖNNUNUM MEÐ!

hver er til ? ? ?

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 10:22:07 / Iris

Einmitt...

Þið eruð nú meiri letingjarnir !!!

Hvað segiði um smá hitting á næstunni ?

Gera eitthvað fönn ?

Komið með hugmyndir ;)


Kv.Íris

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.03.2009 10:21:14 / Iris

SUMAR FRÍ !!! ;)

Hæ ég var að spá hvenær þið farið í sumarfrí í sumar ?
Ég tek mér frí frá 1-10. Júlí og þá ætla ég að vera dugleg að ferðast og fara hringinn og svonnna. Hvort það eru eitthverjir hér sem joyna mann í vacationinu ?

Annars er ekki mikið að frétta, bíð spennt eftir apríl. Mikið skemmtilegt gerist þá;)
Svo eru góð frí í Apríl þá ætla ég að slappa af, þó svo ég þurfi að sjoppa fín föt fyir fermingarnar sem maður er að fara í 8| er að fara í 3 veislur en átti að fara í 4 en það var í vestmannaeyjum og við vorum ekki að nenna að fara þangað ! :)

Svo fer að líða að Maí og útskriftir nálgast hjá litlu öpunum okkar ;)
Ég er extra spennt fyrir því - Veislur eru mjög skemmtilegar!!
Ég vil fá svona einu sinni hópmynd af vinahópnum þá :D
Við eigum enga góða mynd af okkur öllum saman :cry:

Hvenær er næsti hittingur?
Næsta mánuði ?
HMMMMM?

Ég kveð (íris)
Komment já ?




» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2009 20:23:39 / Hildur

Helvítis Fokking Fokk!!!

Ég er að verða geðveik á þessum fokking nágrönnum!!
Shit sko! 
Þau eru alltaf að spila á fokking gítarinn sinn og að syngja, lagavalið er ekki fjölbreytt skal ég segja ykkur, en það er annaðhvort Þjóðvegurinn með honum Bjögga vini okkar (ef þið viljið mitt álit þá ættu þau bara að láta hann um það að syngja lagið) eða þá eikkað leiðindalag með Coldplay!!!
Ekki nóg með helvítis sönginn og glamrið á gítardrusluna heldur stappa þau líka svona skemmtilega hátt í takt við tónlistina (þó svo að ég vilji ekki beint kalla þetta "list" það sem þau eru að hamast þarna uppi) !!!
Ekki nóg með það að þau geri þetta hiklaust líka á virkum kvöldum, stundum til að verða 01.30 á nóttinni heldur finnst þeim gaman að vakna stundum á morgnanna með að spila hressilega á píanóið!! Og þau velja yfirleitt morgnanna þegar ég er í fríi eða á kvöldvakt og á að geta sofið út!!!
ARRRG!!!!:^)

WHY ME??!!! 

Kv. Hildur Ósk pirraða!

KOMMENTA TAKK 

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.03.2009 11:02:41 / Iris

Helv.... Djöf..... Ansk..... Fok.....

Ahhh ég er að verða gráhærð í vinnunni minni, það er komið fram við mann eins og ég sé gólfmotta! Ussss, ég var við það að snappa í einn mannin áðan en ég ákvað að gera það ekki þar sem ég er góð stúlka !!!

Annars vil ég snappa í ykkur !!!
Hvað er málið með þessa síðu?
Engin bloggar!
Ég get ekki trúað því að þið hafið ekki tíma í örtutta bloggfærslu þar sem ég sé ykkur alla tíð á msn eða á facebook! Dont you lie to me !!! :|

Svoooooooo hvenær er næst hittingur ?

Ég er að verða gráhærð hérna!

Hvað er búið að ské upp á síðkastið?

Ég fann Jafar snýr aftur í Elko - kaupti hana á staðnum :D
Svo kaupti ég og Hjörtur Friends safnið allar 10 seríjurnar - loksins á ég þær allar=)
Svoooo fór ég til læknis í fyrradag og það var voða fjör, Gerður lítur alltaf jafn vel út :lol:
Fór á Hressó í gær og kaupti mér Bananasplitt 8| NÆS hvað það var gott !
Hmm svo bara ekkert meir að frétta !!
Reynið nú að toppa þetta, getur ekki verið erfitt =Þ

» 14 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 08:51:54 / Iris

. . .

Hvað er í gangi ?
Er þessi síða alveg dauð ?
Enginn sem vill blogga ?

Reynir litli verður 1 árs á morgun, mikið svakalega er þessi tími fljótur að líða !! :haha:

Hvað er planið í Mars ?
Mér langar að gera eitthvað skemmtó!
Það er mjööög langt síðan að við höfum farið í Lúxis bíó, kannski það gerist í þessum mánuði hver veit ;)

Annars er ég alltaf til í stuð !:)

Hvernig væri að blogga og kommenta takk.......... ;)

Kv.Íris A.

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49
Heimsóknir
Í dag:  49  Alls: 122152
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 29 mars
Könnun
Á að endurvekja síðuna?


Leitarbox

Sykurpúðar
Við erum 8 hressar stelpur, sem kynntumst í Hagkaup fyrir 4 árum. Íris, Magga, Begga, Kolla, Móna, Hildur Þórlinds, Hildur Ósk og Helga Rós.